Fara í efni

Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á Vestfjörðum

Fréttir
Fimmtudaginn 16. nóvember kl. 12:15 verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða Vestfjarðastofa, Byggðastofnun, HMS, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök iðnaðarins.
 
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu. Dagskrá er eftirfarandi: 
 
Áskoranir og tækifæri á Vestfjörðum 
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu 
Staða íbúðauppbyggingar 
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Sigurður Steingrímsson hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu 
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI 
 
Fundarstjóri er Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
 

Húsið opnar kl. 12:00 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Ekki þarf að skrá sig á fundinn með beinum hætti, en gott að melda sig á viðburðinn á Facebook

Öll velkomin!

Skoða á viðburðardagatali