Fara í efni

Alvarlegar athugasemdir vegna ferjunnar Baldurs

Fréttir

Stjórn Vestfjarðastofu tekur undir bókun bæjarstjórnar Vesturbyggðar þar sem hún gerir alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vegagerðarinnar að taka ferjuna Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð í þriðja sinn á skömmum tíma. Stjórn Vestfjarðastofu hefur fullan skilning á þeirri erfiðu stöðu sem uppi er með áætlunarsiglingar Herjólfs til Vestmannaeyja og alvarlegt er að stjórnvöld hafi ekki tryggt þar fullnægjandi samgöngur.

Á sama tíma telur stjórn Vestfjarðastofu það með öllu óboðlegt að sú staða sem uppi er komi niður á þjónustu í heilum landsfjórðungi sem ekki nýtur samkeppnishæfra innviða, skerðingu á fjölda flugferða og situr uppi með eilífar tafir í vegaframkvæmdum. Hefur þessi ákvörðun Vegagerðarinnar mjög slæm áhrif á árstíðarbundna ferðaþjónustu á Vestfjörðum sem er viðkvæm. Með ákvörðunum sem þessari vinnur Vegagerðin gegn áframhaldandi efnahagslegum vexti Vestfjarða og verðmætasköpun á svæðinu.

Stjórn Vestfjarðastofu tekur undir kröfu bæjarstjórnar Vesturbyggðar um að Vegagerðin falli frá ákvörðun sinni um að taka ferjuna Baldur úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð á þessum tíma þar sem hún er ekki í samræmi við samning um að ferjan Baldur sigli ef Herjólfs nýtur ekki við þar sem Herjólfur er þegar í siglingum milli lands og eyja.