Kallað var eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða vegna verkefna ársins 2027 um miðjan september og rann umsóknarfrestur út 21. október.Alls bárust 132 umsóknir, þar af 86 umsóknir um menningarstyrki, 46 umsóknir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna og 10 umsóknir bárust frá menningarstofnunum um stofn- og rekstrarstyrki. Þetta er svipaður fjöldi og barst á síðasta ári.
Nú tekur við vinna fagráða menningar og nýsköpunar, þau leggja til hvaða verkefni skuli styrkt, en úthlutunarnefnd tekur síðan við tillögunum og ákvarðar styrkupphæðir.
Til ráðstöfunar eru kr. 48.850.000, en þegar hefur verið ráðstafað 13 milljónum til fjöláraverkefna. Alls er því úthlutað til verkefna ársins 2027 61.850.000 kr.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður verði kynntar í úthlutunarhófi Uppbyggingarsjóðs, sem verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 26. nóvember kl. 16:00