Fara í efni

Aðgerðaáætlun ferðaþjónustunnar: Viltu hafa áhrif á hæfni og gæði?

Fréttir
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF boða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar í streymi mánudaginn 20. nóvember kl. 09:00 – 10:00.
 
Á fundinum verður kynning á megináherslum aðgerðaáætlunnar ferðamálastefnu til 2030. Fyrstu drög aðgerða voru nýlega birt í samráðsgátt. Áhersla fundarins verður á tillögur aðgerða sem efla hæfni og gæði í ferðaþjónustu.
 
Dagskrá:
 
- Ávarp frá Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra.
- Sunna Þórðardóttir, sérfræðingur hjá mennta- og viðskiptaráðuneytinu, kynnir megináherslur aðgerðaáætlunnar.
- Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands, og Birgir Guðmundsson, hótelstjóri Hilton Reykjavík Nordica, kynna aðgerðir um hæfni og gæði í ferðaþjónustu.
 
Fundarstjóri er Haukur Harðarson, verkefnastjóri Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
 
 

Skoða á viðburðardagatali