Fara í efni

61. Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið 4. maí 2016

Fréttir

Miðvikudaginn 4. maí 2016 verður  61. Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Edinborgarsalnum á Ísafirði. Þingið verður með breyttu sniði þetta árið samkvæmt samþykktum frá 60. Fjórðungsþingi sem haldið var á Patreksfirði 2. og 3. október 2015. Á þinginu verða afgreiddir reikningar og ársskýrslur og lögð verður fram endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár.

 

Þrír ársfundir verða haldnir þennan dag en dagskrá byrjar kl. 10:30 með fundi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks. Fundur Fjórðungssambands Vestfirðinga byrjar kl. 13:30 og líkur honum kl. 15:30. Fundur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða hefst svo kl. 16:00 og er áætlað að honum ljúki um 17:30  Er með þessum breytingum verið að búa til vettvang fyrir sveitarstjórnarmenn þar sem verið er að tryggja auðveldari aðgengi að upplýsingum um fjármál og stöðu stofnanna.  

 

Dagskrá aðalfundar BsVest

  1. Ársskýrsla BsVest um starfsemi liðins árs.
  2. Afgreiðsla ársreiknings síðasta árs og skýrsla endurskoðenda byggðasamlagsins.
  3. Endurskoðuð fjárhagsáætlun starfsársins og fjárhagsáætlun fyrir komandi ár.
  4. Starfsáætlun komandi árs
  5. Kosning fimm aðalmanna og fimm varamanna til stjórnar byggðasamlagsins til tveggja ára. (þessum lið verður frestað þar til fundi Fjórðungssambands Vestfirðinga er lokið)
  6. Laun og þóknun stjórnar.
  7. Kosning endurskoðanda og endurskoðendafyrirtækis.
  8. Umfjöllun um breytingar á samþykktum byggðasamlagsins.
  9. Önnur mál.

 

Dagskrá fundar Fjórðungssambands Vestfirðinga:

  1. Skýrsla stjórnar og rekstareininga, sem FV ber ábyrgð á.
  2. Afgreiðsla ársreikninga og skýrslu endurskoðenda FV og rekstareininga sem FV ber fjárhagslega ábyrgð á.
  3. Endurskoðuð fjárhagsáætlun starfsársins og ákvörðun um árstillag.
  4. Kosning stjórnar og varastjórnar og kosning formanns, nema á kosningaári til sveitarstjórna, en þá er kosningu frestað til haustþings.
  5. Kosning í fastanefndir, nema á kosningaári til sveitarstjórna, en þá er kosningu frestað til haustþings.
  6. Laun og þóknun til stjórna og nefnda.
  7. Kosning endurskoðanda eða endurskoðendafyrirtækis.
  8. Ákvörðun dagsetningar haustþings og umfjöllunarefnis.
  9. Önnur mál löglega fram borin.

 

Dagskrá fundar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Afgreiðsla reikninga.
  3. Breytingar á reglum miðstöðvarinnar.
  4. Kosning formanns og varaformanns fulltrúaráðs.
  5. Kosning stjórnar og löggilts endurskoðenda
  6. Starfsáætlun næsta árs.
  7. Önnur mál.