Fara í efni

60. Fjórðungsþingi Vestfirðinga, þinghald og ályktanir

Fréttir

60. Fjórðungsþing Vestfirðinga var haldið á Patreksfirði 2. og 3. október s.l., meginviðfangsefni þingsins að þessu sinni voru málefni fatlaðs fólks og málefni framhaldsskólans, þingið sóttu um 40 sveitarstjórnarfulltrúar ásamt gestum þingsins.

 

Í ályktun þingsins um málefni fatlaðs fólks vilja sveitarfélögin á Vestfjörðum undirstrika að þau telja málaflokkinn vera best kominn í höndum sveitarfélagana með samstarfi í gegnum núverandi fyrirkomulag með byggðasamlagi (BsVest). Staða málaflokksins hefur hinsvegar breytst mikið frá því að sveitarfélögin tóku við málaflokknum árið 2011 en þjónustustig hefur aukist samfara auknum kröfum.

 

Sveitarfélögin hafa leitast við að hafa þjónustuna í samræmi við þau lög og reglugerðir sem ríkið hefur sett, en mikill vandi hefur skapast þar sem fjármagn til Vestfjarða hefur ekki verið í samræmi við kröfur um aukið þjónustustig. Sveitarfélögin á Vestfjörðum vilja því brýna stjórnvöld um að tryggja fullnægjandi fjármagn, til framtíðar, til reksturs BsVest. Sveitarstjórnarmenn vilja árétta að endurmat þurfi á jöfnunarkerfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til þess að halda megi úti faglegri þjónustu við fatlað fólk í heimabyggð. Ef skera á niður þjónustu sem er fyrir hendi nú þegar, þarf ríkið að koma með tillögur hvernig það sé útfært án þess að það sé andstætt lögum og reglugerðum um þjónustu við fatlað fólk.

 

Ef aukið fjármagn fæst ekki frá ríkinu fyrir árið 2015 og komandi ár, þannig að sveitarfélögin á Vestfjörðum geti veitt þjónustu í samræmi við lög, reglugerðir, og þjónustuþarfir einstaklinga, sjá sveitarfélögin sér ekki annað fært en að taka upp viðræður við félags- og húsnæðismálaráðherra um að málaflokkurinn færist aftur yfir til ríkisins.

 

Þingið lýsir í ályktun miklum áhyggjum af stöðu Heilbrigðsstofnun Vestfjarða m.t.t. þeirra fjárveitinga sem stofnuninni eru settar í frumvarpi til fjárlaga 2016. Í ályktun um framhaldsskólans er sjónum beint sérstaklega að stöðu Menntaskólans á Ísafirði, þar sem gerð sú krafa að starfsemi skólans verði tryggð sem verknáms og bóknámsskóli. Einnig er í annarri ályktun bent á mikilvægi framhaldsnáms á tónlistarstigi. Þingið samþykkti einnig ályktanir er varða forgangsröðun í uppbyggingu innviða Vestfjarða, samgöngur, fjarskipti og orkumál þar sem Hvalárvirkjun stendur miðlægt og ályktun um öryggismál sjófarenda.

 

Þingið fjallaði einnig um breytingar á samþykktum Fjórðungssambandsins sem taka gildi á komandi áramótum, sem fela m.a. í sér aukið samráð með aðildasveitarfélögum um starfsemi FV. Þingið samþykkt síðan að fela stjórn Fjórðungssambandsins að útfæra víðtæka stefnumörkun í starfi sambandsins á grunni málaflokka sveitarfélaga og leggja fyrir næsta Fjórðungsþing. 

 

Ályktanir þingsins ásamt greinargerðum má finna hér