30. apríl kl. 16:15
Safnahúsið á Ísafirði
Í stóra og dularfulla hafinu leynast ýmsar verur - raunverulegar og síður svo! Í þessari föndurstund ætlum við að kafa djúpt og búa til verur hafsins sem fá svo að svamla um Safnahúsið. Vertu með og láttu ímyndunaraflið ráða för! Smiðjan er ætluð börnum á yngsta stig grunnskóla en fullorðnir velkomnir með. Allt efnið á staðnum og þátttaka ókeypis.
Leiðbeinandi Jelena Micic.
Safnahúsið á Ísafirði 30.apríl kl.16:15.