2.- 8. maí
Minjasafnið að Hnjóti
Má snerta hluti á söfnum? Oftast ekki, en á Minjasafninu að Hnjóti verður nýtt snertisafn opnað 2. Maí. Safnið er í raun bara ósköp venjuleg kommóða, en í hverri skúffu leynist hlutur sem má snerta skoða og jafnvel prófa! Hægt verður að skoða hlutina nánar með smásjám og svo verður hægt að teikna af þeim mynd.
Komið og skoðið!