Fara í efni

Hafið og handþrykk

Hvað gerist þegar við fléttum saman vísindi og list? Við ætlum að skoða nánasta umhverfi okkar - hafið og fjöruna - og nýta innblástur í að skapa. Kræklingar og kuðungar, skeljar og sandormar, þari og þang verða að mynd og mynstri á pappír eða textíl.

Bókasafnið Ísafirði býður í fjöruferð með leiðsögn líffræðings. Verkefnið er ætlað börnum og ungmennum á mið- og efsta stigi grunnskóla. Allt efnið á staðnum og þátttaka ókeypis en mikilvægt að skrá sig.

Leiðbeinendur: Cristian Gallo, Kristjana Einarsdóttir og Drífa Thoroddsen.

Safnahúsið á Ísafirði dagana 2.- 3.maí kl.13-15.