VÍS er leiðandi tryggingafélag með skýra framtíðarsýn og þjónustu í fremstu röð. Við leitum nú að öflugum sölu- og þjónusturáðgjafa á Ísafirði sem hefur ástríðu fyrir samskiptum, þjónustu og sölumarkmiðum.
Hjá okkur færð þú tækifæri til að hafa áhrif með því að veita faglega ráðgjöf, byggja upp traust við viðskiptavini og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu öflugs þjónustuteymis VÍS á Vesturlandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum þjónustuleiðir
- Frumkvæðissamskipti og sala í samræmi við þarfir hvers og eins
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni
- Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Metnaður í því að gera sífellt betur og vinna að umbótum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku, pólskukunnátta kostur
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Virkt starfsmannafélag sem veitir m.a. aðgang að orlofshúsum
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna
- Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
- Tækifæri til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Hauksdóttir forstöðumaður einstaklingsviðskipta (johannah@vis.is) eða Íris Dögg Vignisdóttir, þjónustustjóri einstaklingsviðskipta (irisv@vis.is)
Umsóknarfrestur er til og með 12.nóvember 2025. Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum starfasíðuna okkar á www.vis.is.