Fara í efni

Vegagerðin – Verkefnastjóri/sérfræðingur – rekstur jarðganga

Störf í boði

Þjónustusvið Vegagerðarinnar leitar eftir öflugum einstaklingi í fullt starf til að sinna verkefnastjórn og sérfræðiráðgjöf við rekstur og viðhald jarðganga á landsvísu.

Vegagerðin er eigandi eða ábyrgðaraðili 12 jarðganga á Íslandi og er ábyrgð á daglegum rekstri þeirra á höndum Vegagerðarinnar á viðkomandi svæði.

Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber ábyrgð á samræmingu öryggismála, viðhalds og reksturs jarðganga, uppbyggingu og endurnýjun á kerfum og tækniþróun í jarðgöngum.

Þjónustusviðið veitir sérfræðráðgjöf og stuðning vegna reksturs jarðganga auk þess að reka fjölda kerfa til miðlunar gagna og upplýsinga.

Tekið skal fram að þetta starf er án staðsetningar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórnun á viðhaldsverkefnum og helstu þróun á búnaði og við rekstur jarðganga.
  • Sérfræðiráðgjöf og stuðningur vegna hinna ýmsu tæknimála og mótun framtíðarsýnar varðandi tækniþróun á næstu árum.
  • Útgáfa verklagsregla, samræmingu á daglegum rekstri og eftirfylgni með að öryggismálum sé sinnt í samræmi við kröfur.
  • Gerð fjárhagsáætlana, gerð viðhaldsáætlana og endurbætur á jarðgöngum landsins.
  • Kostnaðaráætlanir varðandi alla þætti rekstrar endurbóta og viðhalds.
  • Samræmingarðili á öryggismálum og öryggiskerfum í jarðgöngum.

Hæfniskröfur

  • BSc háskólapróf í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi. MSc er kostur
  • Þekking og reynsla af vinnu við jarðgöng eða jarðgangagerð er kostur
  • Þekking og reynsla á sviði áætlanagerðar og verkefnastjórnunar
  • Þekking og reynsla á ferlavinnu og hagnýtingu hugbúnaðar er kostur
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi verkefnastjóra.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Vakin er athygli á því að persónuupplýsingum um umsækjendur kann að verða miðlað til ráðningarstofu sem kæmi að vinnu við ráðningarferlið. Öll vinnsla og meðferð persónuupplýsinga í ráðningarferlinu fer fram í samræmi við persónuverndarstefnu sem birt er á heimasíðu Vegagerðarinnar, sjá hér https://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/markmid-og-stefnur/personuverndarstefna/

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.07.2022

Nánari upplýsingar veitir

Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri - bergthora.kristinsdottir@vegagerdin.is - 5221000

Smelltu hér til að sækja um starfið