Fara í efni

Vegagerðin - Starfsmaður á vaktstöð á Ísafirði

Störf í boði

Þekkir þú staðhætti á Íslandi og hefur þú áhuga á því að hjálpa vegfarendum að komast örugglega ferðar sinnar um samgöngukerfi landsins, allt árið um kring?

Við leitum að starfsmanni á vaktstöðina á Ísafirði, sem er hluti af deildinni Vöktun og upplýsingar á þjónustusviði Vegagerðarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á Vaktstöð Vegagerðarinnar vinna rúmlega 30 starfsmenn á vöktum alla daga ársins. Stærstu verkefni vaktstöðvar eru vöktun jarðganga og samræming vetrarþjónustu. Í vaktstöð fer fram vöktun á veðri og færð, vöktun á ástandi vega og samgangna, stjórnun og samræming aðgerða, samstarf með neyðaraðilum og miðlun upplýsinga innan Vegagerðarinnar sem og út á við til almennings.

Vaktstöð vinnur náið með upplýsingaþjónustu 1777, vegaþjónustu og þjónustustöðvum Vegagerðarinnar auk verktaka um land allt, sveitarfélögum, og eftir atvikum með lögreglu og björgunarsveitum varðandi viðbragð, útköll og upplýsingagjöf.

Hæfniskröfur

Starfsfólk Vöktunar og upplýsinga hafa jákvætt hugarfar, eru þjónustulunduð, vinna þétt saman í aðgerðum og geta haldið ró sinni í krefjandi aðstæðum. Þau eru skipulögð og sjálfstæð í vinnubrögðum ásamt því að búa yfir framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.

  • Háskólapróf á sviði öryggisfræða, neyðarstjórnunar eða annað nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af því að taka ákvarðanir undir álagi samkvæmt verkferlum
  • Farsæl reynsla af þverfaglegu samstarfi
  • Reynsla af notkun og greiningu veðurgagna mikill kostur
  • Reynsla af starfi þar sem ríkir öflug öryggismenning eða reynsla af vaktstarfi, stjórnun í stjórnstöð eða neyðarstjórnun kostur
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Mjög góð færni til að tjá sig á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
  • Geta til að vinna á vöktum allan sólarhringinn

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.11.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sylvía Rakel Guðjónsdóttir

Tölvupóstur: sylvia.r.gudjonsdottir@vegagerdin.is

Sími: 522 1000

Svanur Þorvaldsson

Tölvupóstur: svanur.thorvaldsson@vegagerdin.is

Sími: 522 1000

Sækja um starf