Fara í efni

Stuðningsforeldri/fjölskylda – Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir traustum einstaklingum/fjölskyldum til að sinna hlutverki stuðningsfjölskyldu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Samningur um stuðning er gerður til eins árs í senn.

Starf stuðningsfjölskyldna er fjölbreytt og felst í því meðal annars að bjóða barni/börnum að taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og tómstundum. Fyrir barnið er stuðningsfjölskylda hugsuð sem skemmtileg upplifun og tilbreyting og um leið hvíld og stuðningur fyrir forelda og/eða forráðamenn barnanna.

Þjónustan á sér annars vegar stoð í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og hins vegar barnaverndarlögum nr. 80/2002.

Hæfniskröfur:

- Góðir samskiptahæfileikar

- Jákvæðni

- Sjálfstæði í vinnubrögðum

- Áhugi og reynsla af vinnu með börnum

- Krafist er hreins sakavottorðs og góðra heimilisaðstæðna

 

Laun eru greidd skv. reglum Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks og miðast greiðslur við umönnunarmat barna.

Áhugasamir eru hvattir til þess að skila umsóknum til Þóru Marý Arnórsdóttur, deildarstjóra á velferðarsviði á netfangið thoraar@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja stutt kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2024.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Marý, í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-