Fara í efni

Lyfja — Umsjón verslunar

Störf í boði

Við leitum að umsjónarmanni fyrir Lyfju Ísafirði.

Starfið felst í yfirumsjón með búð og framstillingum auk þess að sinna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Umsjónarmaður ber ábyrgð á að búðin sé ávallt hrein og snyrtileg, tekur á móti vörum, bókar reikninga, fylgist með birgðum og er í miklum samskiptum við starfsfólk vörusviðs.

Hæfniskröfur:

 

  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð

  • Rík þjónustulund og áhugi á mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni og gott viðmót

  • Geta til að starfa undir álagi

  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði

  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jónas Þór Birgisson, lyfsali Lyfju Ísafirði í síma 456 5442 og jonas@lyfja.is.

 

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

 

Sækja um