Fara í efni

Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Störf í boði

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara í 50% starf við leikskólann Tjarnarbæ á Suðureyri. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann í leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari. Daglegur vinnutími er frá 12:00 til 16:00.

Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Tjarnarbær er tveggja deilda leikskóli en að auki starfrækir skólinn dægradvöl fyrir grunnskólabörn. Einkunnarorð skólans er Virðing – Gleði – Sköpun með áherslu á náttúruna og umhverfið. Um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf, þar sem enginn dagur er eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2023. Umsóknir skulu sendar til Svövu Ránar Valgeirsdóttur leikskólastjóra á netfangið tjarnarbaer@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Svava Rán í síma 450-8290 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við þjónum með gleði til gagns