Fara í efni

Hlíf – Sumarstarf á dagdeild

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar sumarstarf á dagdeild á Hlíf, íbúðum aldraðra. Um er að ræða 83,33% starf frá 1. júní til 31. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Meginverkefni

  • Aðstoða þjónustuþega við félagsstarf og tómstundaiðju (dagdeild)

Hæfniskröfur

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, dugnaður og vinnusemi
  • Áhugi á að vinna með fólki
  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).

Umsóknir skulu skilast til Báru Lindar Hafsteinsdóttur, iðjuþjálfa á netfangið baralind@isafjordur.is.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2024. Nánari upplýsingar veitir Bára Lind í síma 450-8250.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-