Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Sérfræðingur í heimilislækningum á Ísafirði

Störf í boði

Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi sérfræðings í heimilislækningum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Um er að ræða ótímabundið starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi. Starfið er 50-100% staða sem er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (<www.hvest.is>).

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og ýmis hlunnindi samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn störf heimilislæknis ásamt vinnu á öðrum deildum stofnunar eftir samkomulagi

  • Heilsuvernd og vaktþjónusta

  • Fagleg ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar

  • Umsjón með námi læknanema,sérnámsgrunnlækna og sérnámslækna í heimilislækningum

  • Áætlanagerð, umbætur og þróun starfsemi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum

  • Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni

  • Frumkvæði og faglegur metnaður

  • Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Drifkrafur og árangursmiðað viðhorf

  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007, sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis, starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar. Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda.

Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.

Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.10.2025

Nánari upplýsingar veitir

Súsanna Björg Ástvaldsdóttir

Tölvupóstur: susannaba@hvest.is

Sími: 450 4500

Kristrún Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: kristrun.gudmundsdottir@hvest.is

Sækja um starf