Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Sálfræðingur í geðheilsuteymi, starf án staðsetningar

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi stofnunarinnar.

Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og að sinna stuðningi, ráðgjöf og faglegri handleiðslu fyrir starfsfólk auk aðkomu að fræðslu og öðrum verkefnum.

Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu.

Ef þú vilt vinna í öflugu teymi sem leggur áherslu á samvinnu, fagmennsku og metnað í starfi, er þetta einstakt tækifæri

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og/eða á staðnum.
  • Samstarf við aðrar fagstéttir heilsugæslunnar og geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
  • Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.
  • Þátttaka í frekari innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
  • Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis.
  • Handleiðsla í boði

Hæfniskröfur

  • Klínískt nám í sálfræði og starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Þekking og reynsla á gagnreyndum aðferðum
  • Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Áhugi, geta og faglegur metnaður til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð almenn tölvukunnáttu
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 280 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.Staðbundin húsnæðishlunnindi eru í boði.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.11.2025

Nánari upplýsingar veitir

Aron Haukur Hauksson. Tölvupóstur: aron.h.hauksson@hvest.is.

Thelma Björk Guðmundsdóttir. Tölvupóstur: thelma.gudmundsdottir@hvest.is.

Sækja um starf