Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða — Geislafræðingur í sumarafleysingar

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða geilsafræðing til starfa í sumarafleysingar við myndgreiningardeild stofnunarinnar á Ísafirði. Starfshlutfall er 100% eða skv. samkomulagi, unnið er í dagvinna til klukkan 15:00 ásamt sólarhrings bakvöktum.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Geislafræðingur vinnur dagleg störf á myndgreiningardeild sjúkrahússins.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf

  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Geislafræðingar starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Aðstoð við öflun húsnæðis.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.02.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hulda María Guðjónsdóttir, hulda.m.gudjonsdottir@hvest.is

Sími: 450 4500