Laus eru til umsóknar við Grunnskólann á Þingeyri, annars vegar 100% starf kennara á elsta stigi við ýmsar kennslugreinar og hins vegar 50% starf kennara í textíl og myndmennt. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Í dag eru um 40 nemendur í Grunnskólanum á Þingeyri og eru einkunnarorð skólans ábyrgð, virðing, samheldni og gleði. Á Þingeyri búa um 250 íbúar og þar má finna íþróttahús, sundlaug , golfvöll, reiðskemmu og litla verslun og er umhverfið rómað fyrir mikla náttúrufegurð. Í Ísafjarðarbæ öllum búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjörður er í um 50 km fjarlægð frá Þingeyri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
- Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
- Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
- Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
- Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
- Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
- Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er
Menntunar og hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi í grunnskóla
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
- Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
- Góð færni á sviði tækni og nýsköpunar er æskileg
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.
Umsókn skal skilað til Ernu Höskuldsdóttur skólastjóra á netfangið ernaho@isafjordur.is og með henni skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2022. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir Erna skólastjóri í síma 450-8370/663-9833 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.