Fara í efni

Grunnskóli Önundarfjarðar - Íþróttakennari

Störf í boði

Grunnskóli Önundarfjarðar auglýsir laust til umsóknar starf íþróttakennara. Um er að ræða 4 kennslustundir á viku við íþrótta- og sundkennslu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 8. ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi.

Grunnskóli Önundarfjarðar er notalegur en jafnframt líflegur skóli með undir 20 nemendur. Samkennsla fer fram á hverju skólastigi fyrir sig en einnig þvert á öll stig þar sem það hentar. Einkunnarorð skólans eru virðing, metnaður, gleði og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
  • Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
  • Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
  • Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
  • Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
  • Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
  • Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla
  • Sérmenntun íþróttakennara
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Kristbjargar Sunnu Reynisdóttur skólastjóra á netfangið Kristbjorgre@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2022. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg í síma 450-8360 eða í gegnum tölvupóst. Einnig má finna upplýsingar um skólann á heimasíðu hans http://gron.isafjordur.is/