Fara í efni

Arnarlax - Umsjónarmaður fiskivelferðar

Störf í boði

Arnarlax leitar að metnaðarfullum og áhugasömum umsjónarmanni fiskivelferðar til starfa við sjó- og ferskvatnsdeildir fyrirtækisins. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi.

Óskandi er að viðkomandi starfi frá Bíldudal en fyrir réttan aðila er aðalstarfsstöð umsemjanleg.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð og eftirlit með fiskivelferð
  • Eftirlit og samhæfing fiskheilbrigðisaðgerða
  • Mat á seiðum fyrir útsetningu
  • Umsjón með smitvörnum og hreinlæti
  • Samskipti við dýralækna, yfirvöld og aðra utanaðkomandi aðila
  • Taka þátt í innri endurskoðun og aðstoða við ASC endurskoðun
  • Skýrslugerð, vikuleg og mánaðarleg
  • Önnur verkefni tengd fiskivelferð

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í greininni; líffræði, sjávarlíffræði, umhverfisvísindi, dýralækningum eða skyldum greinum.
  • Starfsreynsla er kostur
  • Vandvirkur einstaklingur sem gætir að eigin heilsu og öryggi
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og árangursmiðað hugarfar
  • Góð tölvukunnátta
  • Hefur gaman af krefjandi verkefnum
  • Íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði

 

Arnarlax býður:

  • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein
  • Flutningsstyrk ef við á
  • Frían aðgang að íþróttamannvirkjum á svæðinu
  • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega
  • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun
  • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til
  • Samkeppnishæf laun

 

Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar undir, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.

Arnarlax teymið samanstendur nú af um 200 manns, dyggu og hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.

Við erum með starfsemi í fimm mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði og Reykjavík og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Grímsnes- og Grafningshreppur. Arnarlax framleiddi 16.000 tonn af laxi árið 2022 og gerir ráð fyrir miklum vexti á komandi árum.

Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki. Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.

 

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar.

Nánari upplýsingar veitir Hallveig Hafstað Haraldsdóttir, hallveig@hagvangur.is