Fara í efni

Styrkir

Hér eru nokkrar slóðir á ýmsa styrktarsjóði. Ath. Þessi síða tekur stöðugum breytingum.  
Það má gjarnan senda ábendingar um fleiri sjóði sem eru opnir til umsóknar til Skúla Gautasonar, menningarfulltrúa

Vestfjarðastofa veitir aðstoð við gerð umsókna um styrki og hægt er að hafa samband við ráðgjafa hér.

Eftirfarandi sjóðir auglýsa reglulega styrkveitingar:

  • Myndlistasjóður
    • Undirbúningsstyrki – Undirbúningsstyrkir eru veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar geta sótt um styrk til framkvæmdar.
    • Sýningarverkefni – Styrkir til sýningarverkefna. Með verkefni er átt við viðburð sem fer fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
    • Útgáfustyrki, rannsóknarstyrki og aðra styrki – Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrki og aðrir styrkir eru veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra opinna verkefna sem ekki falla undir aðra liði.
  • Styrkveitingar ANR. 
    • Til hvers? Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 
  • Hljóðritasjóður
    • Fyrir hverja: Tónlistarmenn, jafnt einstaklinga sem hljómsveitir, útgáfufyrirtæki og aðra er koma að hljóðritun tónlistar.
    • Til hvers? Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni.
  • Tækniþróunarsjóður - Vöxtur 
    • Fyrir hverja: Lítil og meðalstór fyrirtæki
    • Til hvers? Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar. 
  • Tækniþróunarsjóður - Markaðsstyrkur
    • Fyrir hverja? Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
    • Til hvers? Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
  • Listamannalaun
    • Fyrir hverja? Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.
    • Til hvers? Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.
  • Sviðslistasjóður
    • Fyrir hverja? Atvinnusviðslistahópa
    • Til hvers? Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.
  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
    • Fyrir hverja?  Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
    • Til hvers? Annars vegar vegna (Nýrrar) þjónustu/aðstöðu á ferðamannastað / ferðamannaleið. Hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið. 
  • Uppbyggingasjóður Vestfjarða
    • Fyrir hverja? Lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög vegna verkefna á Vestfjörðum
    • Til hvers? Uppbyggingarsjóður styrkir menningarverkefni og atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Vestfjörðum
  • Tónlistarsjóður
    • Fyrir hverja? Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.
    • Til hvers? Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.

Athygli skal vakin á því að listinn er ekki tæmandi skrá yfir alla styrki sem eru í boði.

Upplýsingar um aðra styrki má finna fyrir neðan.

Atvinnumál kvenna 

Barnamenningarsjóður

RANNÍS  Rannsóknasjóður Íslands

NORA - North Atlantic Cooperation

Norræna ráðherranefndin 

NATA North Atlantic Tourisim Association 

Nýsköpunarsjóður Námsmanna

 

Æskulýðssjóður

 

Hönnunarsjóður

Kvikmyndasjóður

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

 

Skráning viðburða á Vestfjörðum

Hér er hlekkur til að skrá inn viðburði á dagatal sem er m.a. mikið skoðað af ferðamönnum.