Fara í efni

VÍS — Söluráðgjafi einstaklinga á Ísafirði

Störf í boði

Við leitum að söluráðgjafa á þjónustuskrifstofu VÍS á Ísafirði.

Ert þú árangursdrifinn og metnaðarfullur einstaklingur?

Þá gætum við verið að leita að þér.

Við leitum að árangursdrifnum og lausnamiðuðum söluráðgjafa til að veita viðskiptavinum framúrskarandi tryggingaráðgjöf og þjónustu. Um er að ræða krefjandi og líflegt starf með möguleika á mjög góðum tekjum fyrir réttan aðila.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum síma, netspjall, tölvupóst og á þjónustuskrifstofu

  • Sala á tryggingum til núverandi og nýrra viðskiptavina

  • Greining á tryggingaþörfum viðskiptavina

  • Tilboðsgerð og eftirfylgni

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund, brennandi áhugi á sölu og jákvætt viðhorf

  • Frumkvæði, skipulag, sjálfstæði og metnaður

  • Samskiptafærni

  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða haldbær reynsla af sölu

Fríðindi í starfi

  • Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu

  • Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti

  • Nýsköpunarumhverfi – við elskum hugrekki

  • Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni

  • Tækifæri til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi