Fara í efni

Vinnumálastofnun - Ráðgjafi á Vestfjörðum

Störf í boði

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa í ráðgjafateymi á Fjölmenningar- og Þjónustusviði stofnunarinnar á Ísafirði. Ráðgjafi þjónustar bæði atvinnuleitendur, atvinnurekendur og einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn. Starfið felur í sér að veita ráðgjöf og upplýsingar til innflytjenda, flóttafólks og annarra einstaklinga, ásamt samskiptum við stofnanir og sveitarfélög.

Markmið starfsins er að styðja fólk til virkni á vinnumarkaði og stuðla að virkri þátttöku allra í samfélaginu. Mikil áhersla er lögð á persónulega ráðgjöf, lausnamiðaða nálgun og þverfaglega samvinnu.

Í starfinu felst margvísleg ráðgjöf, upplýsingagjöf og samskipti við ólíka aðila og hópa. Mikilvægt er að viðkomandi geti beitt fjölbreyttum aðferðum í ráðgjöf og átt gott með að mynda traust tengsl í þágu atvinnuleitenda, atvinnulífs og samfélagsins í heild.

Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar: Fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun

  • Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu

  • Ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni innflytjenda og flóttafólks

  • Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila

  • Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum

  • Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila

  • Afgreiðslu og símavaktir

  • Önnur tilfallandi verkefni

 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur

  • Góð þekking á íslensku samfélagi

  • Góð þekking á málefnum innflytjenda

  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð

  • Reynsla af starfi með innflytjendum/flóttafólki er kostur