Fara í efni

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar – Forstöðumaður búsetuþjónustu

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf forstöðumanns í sólarhringsþjónustu (búsetu) fyrir fatlað fólk. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Leitað er að kröftugum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og metnað í starfi og býr yfir miklum skipulagshæfileikum. Mikilvægt er að viðkomandi sé sjálfstæð(ur) í vinnubrögðum og verkefnum en geti einnig unnið vel í teymisvinnu. Næsti yfirmaður er deildarstjóri málefna fatlaðra á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar.

Meginverkefni

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagningu á þjónustu allra búsetukjarna í Ísafjarðarbæ
  • Ábyrgð á innra starfi, samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsstofnanir
  • Ráðningar, starfsmannamál og launaskil til launadeildar
  • Vinnur með deildarstjóra og teymisstjórum við skipulagningu og framkvæmd þjónustunnar
  • Reikningaskil til innheimtufulltrúa
  • Ábyrgð á áætlanagerð í búsetuþjónustu í samræmi við stefnu Ísafjarðarbæjar, s.s. rekstrar-, launa- og starfsáætlanir
  • Þátttaka í stefnumótun þjónustu velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í þroskaþjálfafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á málefnum fatlaðra
  • Reynsla af og þekking á stjórnun nauðsynleg
  • Frumkvæði, sjálfstæði, vandvirkni og skipulagshæfni
  • Rík þjónustulund, lipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og tjáning í ræðu og riti (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)
  • Góð almenn tölvukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2024. Umsóknir, ásamt ferilskrá, kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, skulu sendar til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Marý Arnórsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðra, í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst; thoraar@isafjordur.is.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-