Fara í efni

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar - Félagsleg liðveisla á Þingeyri

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir starfsfólki í félagslega liðveislu á Þingeyri. Um er að ræða starf í tímavinnu þar sem vinnutími er breytilegur að degi til, á kvöldin og um helgar. Vinnutími er ákveðinn í samráði við skjólstæðinga. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Starfið felst einkum í að veita félagslegan stuðning til einstaklinga sem þurfa á því að halda, til dæmis með því að sinna áhugamálum, fara í bíó, út að borða og spjalla.

Meginverkefni

  • Veita félagslegan stuðning
  • Efla fólk til sjálfstæðis í félagslegum samskiptum

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfinu
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Rík þjónustulund
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
  • Bílpróf og bíll til afnota kostur

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/ VerkVest). Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2024.

Umsóknir skulu sendar til Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur, forstöðumanns stuðningsþjónustu á netfangið hrafnhildurod@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur, í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-