Fara í efni

Vegagerðin - Vélamaður á Ísafirði

Störf í boði

Vegagerðin auglýsir laust starf vélamanns á þjónustustöðinni á Ísafirði.

Vélamenn vinna á opnunartíma þjónustustöðvar en eru þar að auki á bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, til að sinna vetrarþjónustu.

Helstu verkefni

  • Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega á starfssvæði Vegagerðarinnar á Ísafirði
  • Ýmis vinna í starfsstöð
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn ökuréttindi
  • Vinnuvélaréttindi eða meirapróf æskilegt
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð öryggisvitund
  • Almenn tölvukunnátta