Fara í efni

Vegagerðin — Sumarstörf

Störf í boði

Sumarstörf þjónustustöðvar á Vestursvæði: 6 starfsstöðvum.

Fjölbreytt og góð útivinna.
Opið er fyrir umsóknir um sumarstörf á starfsstöðvum Vestursvæðis.
Starfsstöðvar eru staðsettar í Borgarnesi, Ólafsvík, Búðardal, Patreksfirði, Ísafirði og Hólmavík.
Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum á hvaða starfsstöð viðkomandi sækir um.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónustustöðvar.
Vinnuhópar eru starfræktir á þjónustustöðvum Vegagerðarinnar yfir sumartímann og sinna þeir almennu viðhaldi vegsvæða.

  • Vinna við umferðarmerki, vegvísa, stikur, málningarvinna
  • Holuviðgerðir, ristahlið, hreinsun vegsvæðis
  • Tiltekt og viðhald í áhaldahúsi og lóð
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni

Vélaverkstæði Borgarnesi
Vélaverkstæði sinnir almennu viðhaldi og lagfæringum á þjónustustöðvum í Borgarnesi, Ólafsvík og Búðardal, Hvammstanga

  • Viðhald og lagfæringar á vinnuvélum, tækjum og bifreiðum
  • Viðhald og lagfæringar á vegbúnaði
  • Önnur tilfallandi störf er upp kunna að koma hverju sinni

Hæfniskröfur

Almenn menntun
18 ára eða eldri
Almennt ökuskírteini
Góð öryggisvitund
Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og hæfni að vinna í hóp
Góð kunnátta í íslensku eða ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og upplýsingar um fyrri störf. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf á bilinu 15. maí-6.júní.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.02.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Guðmundur Sverrisson, yfirverkstjóri Ísafirði - sigurdur.g.sverrisson@vegagerdin.is - 5221000
Pétur Björnsson Guðmundsson, yfirverkstjóri Borgarnesi - petur.bjornsson.gudmundsson@vegagerdin.is - 5221000

Sækja um starf