Fara í efni

Umsjónarkennari á unglingastigi – Grunnskólinn á Ísafirði

Störf í boði

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir starf umsjónarkennara á unglingastigi laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið 100% starf til 10. júní 2024. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi kennara sem sýnir frumkvæði í starfi.

Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 380 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
  • Skipuleggja kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
  • Veita námsráðgjöfum upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda; veitir foreldrum sem gleggstar upplýsingar um skólann og skólastarfið og gengi viðkomandi nemanda
  • Fylgjast með námi og þroska nemenda sinna
  • Fylgjast með félagslegu gengi nemenda sinna
  • Hafa forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað

Menntunar og hæfniskröfur

  • Kennsluréttindi í grunnskóla
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum og skipulagsfærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Kristjáns Arnars Ingasonar skólastjóra á netfangið kristjanin@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og leyfisbréf. Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2024.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Arnar í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

-Við þjónum með gleði til gagns-