Umhverfisstofnun veitir fjölbreytta þjónustu og tekur ákvarðanir er varða umhverfisgæði og náttúruvernd. Teymi fjármála og reksturs gegnir lykilhlutverki í miðlægri þjónustu stofnunarinnar. Stafræn þróun er áhersluverkefni og við tökum fagnandi á móti nýju fólki sem hefur þekkingu og áhuga á stafrænum lausnum. Stofnunin er mönnuð öflugu fólki á starfsstöðvum um allt land.
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf bókara. Viðkomandi mun starfa í öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á samvinnu í miðlægri þjónustu fyrir stofnunina. Verkefni viðkomandi felast í fjölbreyttum verkefnum á fjármálasviði. Sérfræðingurinn mun taka þátt í samvinnu miðlægrar þjónustu stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Reikningagerð
-
Frágangur og uppgjör innkaupakorta og greiðslukorta.
-
Umsjón með innheimtu krafna
-
Afstemming viðskiptamanna og almenn þjónusta við viðskiptamenn.
-
Afstemming tékkareikninga og umsjón með sjóðbók
-
Umsjón með eignakerfi
-
Umsjón með uppgjöri á ferðabeiðnum vegna erlendra ferða og bókanir ferða
Hæfniskröfur
-
Þekking og/eða reynsla af bókhaldi og fjármálum ríkisins
-
Reynsla og frumkvæði í gæðamálum er kostur
-
Reynsla af að starfa í teymi er kostur
-
Stafræn verkefni - þekking og geta til að sýna frumkvæði
-
Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
-
Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
-
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri sem veitir upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 591 2000.
Umhverfisstofnun er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Við búum yfir fjölbreyttri sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun.
Við störfum í teymum, vítt og breitt um landið á 9 starfsstöðvum og eftir vottuðum gæðakerfum. Við erum með jafnlaunavottun, með virka umhverfisstefnu og störfum samkvæmt Grænum skrefum, graenskref.is.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun áumhverfisstofnun.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2024
Nánari upplýsingar veitir
Björgvin Valdimarsson, bjorgvin.valdimarsson@umhverfisstofnun.is
Sími: 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem, thora.m.briem@umhverfisstofnun.is
Sími: 5912000