Fara í efni

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum — Fulltrúi í umboð Tryggingastofnunar ríkisins og Sjúkratrygginga Íslands

Störf í boði

Laus er til umsóknar staða fulltrúa í umboði Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) á skrifstofu embættisins á Ísafirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst að annast samskipti við þá sem þurfa að leita til þessara stofnana, veita þeim upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð og vinna úr umsóknum og gögnum sem berast.

Starfsmaður er í tíðum samskiptum við TR og SÍ. Starfsmaður lýtur faglegum fyrirmælum þessara stofnana og deildarstjóra umboðsins.

Þá leysir starfsmaðurinn af í afgreiðslu sýslumanns og sinnir öðrum tilfallandi verkefnum á öðrum starfssviðum eftir þörfum.

Hæfniskröfur

Stúdentspróf æskilegt. Gerð er krafa um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfni, sjálfstæði, frumkvæði, og góða almenna tölvukunnáttu. Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði auk einhverrar kunnáttu í ensku.

Æskilegt er að umsækjandi sé fljótur að læra á hin ýmsu tölvukerfi sem notast er við í þessu starfi auk þeirra tölvukerfa sem sýslumenn notast við.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Um er að ræða framtíðarstarf.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum er svarað eftir að ráðningu lokinni.

Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Undir embættið heyra þrjár skrifstofur; á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 16 í 13,5 stöðugildum. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.

Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu.

Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi.

Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.01.2024

Nánari upplýsingar veitir

Jónas B. Guðmundsson, jonas.gudmundsson@syslumenn.is

Sími: 4582400

Helga Dóra Kristjánsdóttir, hdk@syslumenn.is

Sími: 4582400

Sækja um