Fara í efni

Pósturinn - Tímabundið starf í afgreiðslu

Störf í boði

Pósturinn leitar að gjaldkera í tímabundið starf á pósthúsinu á Ísafirði (Póstnr. 400).Starfið felur m.a. í sér þjónustu við viðskiptavini, almenna afgreiðslu, frágang á pósti og önnur tilfallandi verkefni.Tímabil ráðningar er frá nóvember og út janúar. Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn er frá klukkan 08:00 til 16:05, alla virka daga.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Sterk ábyrgðartilfinning
  • Lausnamiðuð hugsun og jákvætt hugarfar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Bílpróf er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2025. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.