Fara í efni

Menntaskólinn á Ísafirði - Umsjónarmaður fasteigna

Störf í boði

Menntaskólinn á Ísafirði óskar eftir að ráða umsjónarmann fasteigna í afleysingu frá 1. ágúst 2024 - 31. júlí 2025.

Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í bók-, list-, verk- og starfsnámi og á starfsbraut. Í skólanum er kennt í stað-, dreif- og fjarnámi. Tæplega 50 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 450. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarnám. Gildi skólans eru virðing, metnaður og vellíðan.

Á heimasíðu skólans, www.misa.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið sem og gæðahandbók skólans en skólinn hefur fengið ISO-9001 gæðavottun . Skólinn hefur sömuleiðis fengið ÍST 85:2012 jafnlaunavottun. Skólinn hefur fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarstofnun og árið 2023 lenti skólinn í 2. sæti í flokki meðalstórra stofnana í Stofnun ársins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarmaður fasteigna:

  • starfar eftir starfslýsingu sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is

  • hefur eftirlit og daglega umsjón með húsnæði skólans, húsbúnaði og skólalóð

  • opnar og lokar húsnæði skólans á starfstíma hans og tryggir gott aðgengi að húsnæðinu

  • hefur yfirumsjón með ræstingum

  • hefur eftirlit með ýmsum kerfum sem snúa að húsnæði skólans

  • annast smærri lagfæringar og viðhald á skólahúsnæði

  • vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi, er með skipulagshæfni, fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.

Umsjónarmaður fasteigna skal hafa:

  • menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi

  • drifkraft og frumkvæði til að leysa þau verkefni sem falla undir starfið

  • faglegan metnað, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar

  • samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt

  • reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Ekki er um starf án staðsetningar að ræða.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsóknum skulu einnig fylgja afrit af prófskírteinum ef við á.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2024.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Áskilinn er réttur til að nýta umsóknina í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Heiðrún Tryggvadóttir, heidrun@misa.is

Sími: 450 4400 og 849 8815

Dóróthea Margrét Einarsdóttir, dorothea@misa.is

Sími: 450 4400