Leikskólinn Tangi á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% starf leikskólakennara eða starfsmanns í leikskóla. Möguleiki er á lægra starfshlutfalli einnig. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en um er að ræða tímabundið starf til 7. júlí 2026.
Í leikskólanum eru eingöngu 5 ára börn sem eru á sínu síðasta ári í leikskóla. Starfið mjög fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026. Umsóknir skulu sendar til Kötlu Vigdísar Vernharðsdóttur eða Kristófers Baldurs Sverrissonar, leikskólastjórnenda á netföngin katlave@isafjordur.is eða kristofers@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veita Katla eða Kristófer, í síma 450-8295 eða í gegnum ofangreinda tölvupósta.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-