Fara í efni

Leikskólinn Sólborg – Matráður

Störf í boði

Leikskólinn Sólborg á Ísafirði óskar eftir matráði í 87,5% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí 2024. Matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum. Vinnutími er frá 07.00 til 14.00. Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld og undirbúningur matmáls- og kaffitíma
  • Skipuleggur matseðil í samráði við leikskólastjóra og næringarfræðing
  • Innkaup á matvælum og hreinlætisvörum
  • Uppvask, frágangur og þrif í eldhúsi

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af störfum í mötuneyti æskileg
  • Reynsla af störfum í leikskóla kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna á líflegum og skemmtilegum vinnustað
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Þolinmæði, umburðarlyndi og rík þjónustulund
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl / VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2024. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-