Fara í efni

Leikskólinn Eyrarskjól Ísafirði óskar eftir starfskrafti

Störf í boði
 

Hefur þú gaman að börnum?

Finnst þér gaman að leika þér með leir? Kubba? Skapa?

Finnst þér prumpubrandarar enn fyndnir?

Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

 

Kæri vinur/vinkona, vertu velkomin á Leikskólann okkar Eyrarskjól á Ísafirði! ☀️

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.

Við erum að leita að leikskólakennara eða leiðbeinanda sem getur unnið 100% starf.

Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Leikskólinn Eyrarskjól er 5 kjarna leikskóli staðsettur á Ísafirði þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Í Eyrarskjóli er skemmtilegt starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
  • Hafa gaman í vinnunni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk er í fríu fæði
  • Vinnustytting

Nánar um leikskólann og allar upplýsingar á heimasíðu Eyrarskjóls

https://eyrarskjol.hjalli.is

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Einarsdóttir, leikskólastýra. Vinsamlegast sendið póst á ingibjorgei@hjalli.is