Fara í efni

Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar - Sundlaugarverðir - Sumarstarf

Störf í boði

Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir sundlaugarvörðum í sumarstörf við sundlaugarnar á Ísafirði, Flateyri og Suðureyri. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% störf í vaktavinnu. Störfin eru tímabundin til loka ágústmánaðar 2024.

Helstu verkefni og ábyrgðasvið: Afgreiðsla, þrif, laugarvarsla, eftirlit með búnaði og fleiru.

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera orðin(n) 20 ára og í líkamlega góðu formi til að geta staðist hæfnispróf í björgun, þarf að hafa framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hafa gaman af því að veita þjónustu. Dugnaður og iðjusemi er mikilvægur eiginleiki í starfinu.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2024. Tilgreina skal í umsókn um hvaða starfsstöð óskað er eftir að starfa á.

Nánari upplýsingar um störfin veitir forstöðumaður íþróttamannvirkja, Grétar Helgason, í síma 450-8488 eða í gegnum tölvupóst á netfangið gretarhe@isafjordur.is. Umsóknir sendist á fyrrgreint netfang og með þeim skal fylgja ferilskrá.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-