Fara í efni

Ísafjarðarbær – Forstöðumaður stuðningsþjónustu

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns stuðningsþjónustu. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er að kröftugum einstaklingi sem býr yfir miklum skipulagshæfileikum og sýnir frumkvæði og metnað í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í hópi, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf krefur. Næsti yfirmaður er deildarstjóri félagsþjónustu á velferðarsviði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagningu stuðningsþjónustu hjá Ísafjarðarbæ
  • Ábyrgð á innra starfi, samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsstofnanir
  • Gerir þjónustumat og vinnur þjónustuáætlanir fyrir notendur í samstarfi við þá
  • Ráðningar, starfsmannamál og launaskil til launadeildar
  • Reikningaskil til innheimtufulltrúa
  • Ábyrgð á áætlanagerð í samræmi við stefnu Ísafjarðarbæjar s.s. rekstrar-, launa-, og starfsáætlanir
  • Þátttaka í stefnumótun velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar
  • Starfið fer að mestu fram á skrifstofu á Hlíf

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á stjórnun æskileg
  • Reynsla og þekking á starfssviðinu kostur
  • Frumkvæði, vandvirkni og skipulagshæfni
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku og enskukunnátta, ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2024. Umsóknir skal senda til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar í netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteini/prófskírteinum, ásamt kynningarbréfi þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gerð grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs í gegnum tölvupóst margret@isafjordur.is eða í síma 450-8000.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-