Fara í efni

Innviðaráðuneytið — Lögfræðingur á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála

Störf í boði

Innviðaráðuneytið auglýsir eftir lögfræðingi á skrifstofu sveitarstjórnar- og byggðamála.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru m.a. afgreiðsla stjórnsýsluverkefna á sviði sveitarstjórnarmála, verkefni tengd eftirliti ráðuneytisins með stjórnsýslu sveitarfélaga og utanumhald því tengdu, svo sem staðfesting á samþykktum sveitarfélaga og samstarfssamningum þeirra á milli, vinna við gerð lagafrumvarpa og samningu reglugerða, aðkoma að gerð samninga o.fl. Í starfinu felst jafnframt þátttaka í starfshópum á verkefnasviði skrifstofunnar, m.a. varðandi stefnumótun, samskipti við stofnanir, Alþingi og almenning.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistaraprófi í lögfræði.

  • Góð þekking á stjórnsýslu- og sveitarstjórnarrétti.

  • Þekking á málefnum sveitarfélaga.

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti og ensku.

  • Kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur.

  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp.

  • Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Um er að ræða fullt starf. Athygli er vakin á því að í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið og umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Ráðuneytið hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Aðalsteinn Eyþór Þorsteinsson, adalsteinn.thorsteinsson@irn.is

Sími: 545-8200