Fara í efni

Heilsuleikskólinn Laufás, Þingeyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Störf í boði

Heilsuleikskólinn Laufás á Þingeyri auglýsir laust til umsóknar tímabundið 60% starf leikskólakennara. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari. Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2026. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða í síðasta lagi um mánaðarmót febrúar/mars. Starfið er tímabundið fram til loka júní 2026 en um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

 

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknir skulu sendar til Ingu Jónu Sigurðardóttur leikskólastjóra á netfangið ingasi@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Inga, í síma 450-8270 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-