Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða — Sjúkraliði við heimahjúkrun - sumarafleysing

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í sumarafleysingu á heimahjúkrunardeild á Ísafirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliðar heimsækja, aðstoða og annast um skjólstæðinga á heimilum þeirra. Vinnutími er á morgunvöktum á virkum dögum og á 4 klst kvöldvöktum. Unnið er aðra til þriðju hverja helgi.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Starfsreynsla æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.02.2024

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Björk Ólafsdóttir, heidabjork@hvest.is

Sími: 450 4500

Sækja um