Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða starfsmann á hjúkrunarheimilið Tjörn á Þingeyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða almenn störf á hjúkrunarheimili. Hér getur verið gott tækifæri fyrir hvern þann sem langar að breyta um umhverfi og öðlast fjölbreytta reynslu í hvetjandi starfsumhverfi.
Starfsmaður þarf helst að geta hafið störf í apríl.
Hæfniskröfur
-
Reynsla sem nýtist í starfi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 250 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2024
Nánari upplýsingar veitir
Erla Björg Ástvaldsdóttir, bjorg@hvest.is
Sími: 899-8137