Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða — Hjúkrunarfræðingur á Sjúkradeild - sumarafleysing

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga frá 1. júní 2024, eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefni á deildinni eru afar fjölbreytt. Um er að ræða almenn störf hjúkrunarfræðings á blandaðri akút legudeild. Einnig sinnir starfsfólk deildarinnar sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnu.

Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Einnig er þetta kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun. Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Þar er góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Möguleiki er á að stofnunin aðstoði við öflun íbúðarhúsnæðis.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.02.2024

Nánari upplýsingar veitir

Þórunn Pálsdóttir, thorunn@hvest.is

Sími: 450 4500

Sækja um