Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða afleysingu fyrir deildarstjóra á legudeild á Patreksfirði til 31. ágúst 2026.
Hjúkrunardeildarstjóri ber mönnunarlega, rekstrarlega og faglega ábyrgð á deildunum í nánu samstarfi við deildarstjóra heilsugæslu og framkvæmdastjóra hjúkrunar. Á deildinni eru ellefu hjúkrunarrými og tvö sjúkrarými og einkennist starfsemin af góðum starfsanda, umhyggju og hlýju.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Stjórn á skipulagi og framkvæmd hjúkrunar
-
Stjórn starfsmannahalds, mannaráðninga og daglegs rekstrar
-
Ábyrgð á gerð vaktaskráa og frágang á vinnuskýrslum til launadeildar
-
Samræming á mönnun, vinnulagi og þjónustu milli hjúkrunarheimila
-
Náið samstarf við heilsugæslu
Hæfniskröfur
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Framhalds- eða sérmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
-
Stjórnunarreynsla æskileg
-
Sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Patreksfjörður- og Vestfirðir í heild er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri. Enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.
Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu,
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Árný Magnúsdóttir
Tölvupóstur: arny.magnusdottir@hvest.is
Hildur Elísabet Pétursdóttir
Tölvupóstur: hildurep@hvest.is