Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir starf deildarstjóra stoðþjónustu laust til umsóknar frá 1. ágúst 2024. Um er að ræða 100% starf.
Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 390 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess. Næsti yfirmaður deildarstjóra er skólastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með sérkennslu og kennslu íslensku sem annars máls.
- Sér til þess að veitt sé stoðþjónusta í hverjum árgangi eftir þörfum.
- Er tengiliður skólans við sálfræðinga, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga og stofnanir sem tengjast skólanum.
- Veitir stuðningsfulltrúum faglegan stuðning.
- Situr teymis- og skilafundi eftir því sem við á.
- Aðstoðar kennara við gerð einstaklingsnámskráa.
- Hefur eftirlit með námsgögnum sem eru sérstaklega ætluð sérkennslu og sér um skipulagningu á sérkennsluaðstöðu í samráði við aðra stjórnendur.
- Fundar með sérkennurum og þroskaþjálfum reglulega yfir veturinn.
- Skrifar skýrslu um starf skólaársins sem er hluti af ársskýrslu skólans.
- Útbýr aðlagaðar stundaskrár nemenda þegar þörf er á.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (s.s. kennaramenntun, þroskaþjálfamenntun)
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði sérkennslu
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
- Frumkvæði og metnaður
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumál kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknum skal skilað til Kristjáns Arnars Ingasonar skólastjóra á netfangið kristjanin@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og leyfisbréf. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 22. apríl 2024. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Arnar í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-