Fara í efni

Dægradvöl Ísafirði - Frístundaleiðbeinandi

Störf í boði

Laust er til umsóknar starf frístundaleiðbeinanda í dægradvöl á Ísafirði. Starfið er tímabundið til 6. júní 2026 og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 6. janúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Vinnutíminn er frá 13:00 til 16:00 (42% starfshlutfall) alla virka daga. Næsti yfirmaður er forstöðumaður dægradvalar.

Starfið er afar líflegt og gefandi þar sem unnið er daglega með börnum í 1.-4. bekk grunnskóla.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í uppeldisstarfi þar sem megináhersla er lögð á velferð og vellíðan barns/barna
  • Full þátttaka í öllu dagskipulagi dægradvalar og frístundar
  • Samstarf við foreldra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám í uppeldis- eða tómstundafræðum æskilegt (frístundaleiðbeinandi)
  • Reglusemi
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Starfsreynsla á frístundasviði kostur
  • Vera orðin(n) 18 ára

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2025. Umsóknum skal skilað til Birtu Óskar Hönnudóttur, forstöðumanns, í netfangið birta@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birta Ósk í síma: 450-8059 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-