Ungmennaþing Vestfjarða 2025 hlaut á dögunum styrk úr Erasmus+ áætluninni að upp á rúmlega 5.3 milljónir (36.642 evrur). Styrkurinn mun styðja við framkvæmd og þróun þingsins næstu mánuði, en Ungmennaþing Vestfjarða, sem verður haldið í haust, fer að þessu sinni fram í Breiðuvík.
Erna Lea Bergsteinsdóttir og Embla Dögg Bachmann hafa tekið við verkefnastjórn ungmennaráðs Vestfjarða og undirbúningi ungmennaþings af Steinunni Ásu Sigurðardóttur, sem heldur nú til annarra verkefna innan Vestfjarðastofu. Erna mun leiða starf ungmennaráðsins og Embla bera ábyrgð á skipulagningu ungmennaþingsins, en verkefnið verður unnið í nánu samstarfi þeirra á milli. Báðar munu þær sitja fundi með ungmennaráðinu og taka þátt í öllum þáttum undirbúnings og framkvæmdar.
Erna og Embla segjast hlakka mikið til að vinna að þessu mikilvæga verkefni með öflugum ungmennum af Vestfjörðum og leggja sitt af mörkum til að efla lýðræði, þátttöku og rödd ungs fólks á svæðinu.