27. maí 2025
Fréttir
Ungmennaráð Vestfjarða
Nú er að hefjast vinna við mótun menningarstefnu fyrir Vestfirði. Haldnir verða fimm opnir fjarfundir, hver með sinni yfirskrift. Öllum búsettum á Vestfjörðum er velkomið að taka þátt og leggja orð í belg.
Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudaginn 2. júní kl. 16 og ber yfirskriftina Þátttaka barna og ungmenna í menningarlífinu. Þar verður rætt hvernig best verði staðið að menningaruppeldi, bæði í skólum, á heimilum og annarsstaðar.
Smellið hér til að taka þátt í fundinum. Reiknað er með því að hann standi í rúma klukkustund.
Verkefnisstjóri er Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarða.