
Úthlutun úr Barnamenningarsjóði fyrir árið 2025 fór fram á Degi barnsins sem haldinn er hátíðlegur síðasta sunnudag maímánaðar og bar að þessu sinni upp þann 25. maí. Vestfirska barnamenningarhátíðin Púkinn fékk styrk upp á 5,5 m.kr fyrir verkefnið Púkinn, hafið og sólmyrkvinn. Það er virkilega spennandi verkefni sem unnið verður í samvinnu við Þykjó, Sigga & Ingibjörgu og Stjörnu-Sævar, en Ungmennaráð Vestfjarða valdi hafið sem þema hátíðarinnar 2026 og vildu þau flétta vísindalegan vinkil inn í listsköpunina. Þetta var sannarlega tekið til athugunar þegar þessi viðburður sem verður hryggjarstykki næsta Púka var skapaður, en sérlega skemmtilegt í þessu ljósi er að almyrkvi á sólu verður í ágúst 2026 og nýtur hans lengst við á Vestfjörðum.
Þrjár barnamenningarhátíðir á landsbyggðinni hlutu að þessu sinni hæstu styrkina, 5,5 m.kr. hver, en auk Púkans eru það barnamenningarhátíðin Bras á Austurlandi fyrir Þræði og Barnamenningarhátíð Vesturlands 2025.
Barnamenningarsjóður styrkir nú samtals 47 fjölbreytt verkefni um alls rúmar 100 m.kr. Sjóðnum bárust 138 umsóknir fyrir tæpar 450 m.kr. og hafa aldrei fleiri umsóknir borist. Þriggja manna fagráð fjallaði um innsendar umsóknir í sjóðinn og ráðherra menningarmála samþykkti svo tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.
Úthlutunarhófið sem haldið var í Höfuðstöðinni var glæsilegt og Lúðrasveit Austurbæjar skipuð grunnskólabörnum blés inn gleðina. Síðan tóku við Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Guðný Hilmarsdóttir, formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs, og ávörpuðu fulltrúa styrktra verkefna.
Fulltrúar Púkans, Skjaldbökunnar og Við Djúpið með Loga Einarssyni ráðherra.
Það er gaman að segja frá því að fleiri skemmtileg barnamenningarverkefni á Vestfjörðum hlutu styrki úr sjóðnum, en það eru: Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda fyrir Skjaldbökuna, Sauðfjársetur á Ströndum fyrir Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2025, Ísafjarðarbær fyrir Safnahúsið okkar, Við Djúpið fyrir Barna- og ungmennadagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið og Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum fyrir Bátadagar barnanna.
Fulltrúar Púkans, Safnahússins á Ísafirði og tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið
Lista yfir öll verkefni styrkt af Barnamenningarsjóði í ár má sjá hér.